Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) heldur sína þrettándu ungmennaráðstefnu Ungt fólk og lýðræði. Ráðstefnan fer fram dagana 9. – 11. September 2022 í Héraðsskólanum á Laugarvatni.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Ungt fólk og lýðræði – Gleym mér ei!
Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og komast aðeins 80 þátttakendur að. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. UMFÍ styrkir 80% af ferðakostnaði. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum. Skila þarf inn kvittunum til þess að fá styrk fyrir ferðakostnaði.
Á viðburðinum er lögð áhersla á að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks í leik og starfi, gefa einstaklingum verkfæri og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif í sínu nær samfélagi.
Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni.
Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Kynningar, málstofur, hellings hópefli, samtal við ráðamenn og önnur skemmtilegheit. Dagskrá verður birt þegar nær dregur.
Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um rafsígarettur.
Við hvetjum ykkur til þess að taka dagana frá og hvetja ungt fólk til þátttöku í tíma. Viðburðurinn er opinn öllum ungmennum á tilsettum aldri, engin skylda er fyrir því að vera þátttakandi í ungmennaráði.
Skráning er hafin og stendur til 31. ágúst 2022, sjá hér.
Nánari upplýsingar er að finna inn á umfi.is.