Söfn hafa mátt og getu til þess að breyta heiminum. Sem einstakir staðir til uppgötvana fræða þau okkur jafnt um fortíðina og opna hug okkar gagnvart nýjum hugmyndum – sem hvort tveggja gerir okkur fært að leggja grunn að betri framtíð.
Á Alþjóðlega safnadaginn 2022, þann 18. maí næstkomandi, viljum við horfa á söfn og möguleika þeirra til að koma á umbótum í samfélaginu á þrenns konar hátt:
- Mátturinn til að uppfylla kröfur um sjálfbærni: Söfn eru lykil- þátttakendur í að ná markmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sem áhrifavaldar í sínum nærsamfélögum leggja þau mikið af mörkum á þessu sviði, þar á meðal með því að efla stuttar boðleiðir í félagshagkerfinu og miðla vísindalegum upplýsingum um umhverfis-vandann og loftslagsvána.
- Mátturinn til að stuðla að nýsköpun varðandi stafræna miðlun og aðgengi: Söfn eru orðin að vettvangi nýsköpunar þar sem
ný tækni er þróuð og innleidd í hversdagslífið. Stafræn þróun og nýsköpun getur aukið aðgengi í söfnum til muna og stuðlað að skilningi á flóknum og erfiðum hugtökum. - Mátturinn til að styðja við samfélagið með öflugri fræðslu: Með safnkosti sínum og opinni dagskrá spinna söfnin félagslegan vef sem nauðsynlegur er hverju samfélagi. Með því að halda á lofti lýðræðis-legum gildum og bjóða upp á símenntunarmöguleika fyrir öll leggja söfn sitt af mörkum til að móta upplýst og þátttökuvænt samfélag.
Borgarbyggð hvetur íbúa til þess að kíkja í Safnahúsið í tilefni dagsins og sjá sumarsýningu safnsins.