Íþróttamaður Borgarbyggðar 2012

febrúar 5, 2013
Íþróttamaður Borgarbyggðar verður kjörinn í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi sunnudaginn 10. febrúar næstkomandi klukkan 21.00, að afloknum leik Skallagríms og Tindastóls í úrvalsdeild karla í körfuknattleik.
Tómstundanefnd Borgarbyggðar kýs árlega íþróttamann ársins úr tilnefningum frá ungmennafélögum í sveitarfélaginu. Kjörið fer nú fram í 22. sinn og eru tólf íþróttamenn tilnefndir.
Við þetta tækifæri verða veittar viðurkenningar til íþróttafólks sem hefur skarað fram úr á árinu 2012. Jafnframt verður veitt viðurkenning úr Minningarsjóði Auðuns Hlíðkvists Kristmarssonar.
Íbúar Borgarbyggðar eru hvattir til að fjölmenna í Íþróttamiðstöðina og samgleðjast íþróttafólkinu og fjölskyldum þeirra.
Myndin er af Jóni Inga Sigurðssyni íþróttamanni Borgarbyggðar árið 2011.
 
 

Share: