Sérstakur húsnæðisstuðningur

janúar 13, 2022
Featured image for “Sérstakur húsnæðisstuðningur”

Vakin er athygli þeirra sem notið hafa sérstakra húsaleigubóta frá Borgarbyggð, að endurnýja þarf umsókn um áramót. Þetta á þó ekki við stuðning vegna nemenda 15 – 18 ára, umsóknin gildir jafnlengi og leigusamningurinn.

Fylla þarf út umsókn sem ber heitið umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning á heimasíðu Borgarbyggðar, í þjónustugáttinni fyrir 20. janúar nk. svo þær komi til greiðslu um mánaðarmótin janúar/febrúar.

Lesa má nánar um reglur um stuðning í húsnæðismálum hér.

Þjónustugáttin


Share: