Laust starf leikskólakennara í Uglukletti

janúar 5, 2022
Featured image for “Laust starf leikskólakennara í Uglukletti”

Í Uglukletti byggir leikskólastarfið á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði þar sem meðal annars er horft til hugmynda Mihaly Csikszentmihalyi um flæði auk kenninga um sjálfræði barna. Eitt af markmiðum Uglukletts er að undirbúa börnin undir framtíð, sem enginn veit hvað ber í skauti sér. Af þeim sökum leggjum við megin áherslu á að efla félagslega hæfni, frumkvæði og sjálfræði barna. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans http://ugluklettur.leikskolinn.is/.

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

  • Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og stefnu leikskólans og sveitarfélagsins. Hann fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans.

MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Sterk fagleg sýn
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni, frumkvæði, áhugi og metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ

Vinnutími: Dagvinna

Starfshlutfall: 100%

Starfsvið: Fjölskyldusvið

Umsóknarfrestur: 19. janúar n.k.

Umsókn skulu berast í gegnum Alfreð. Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.

Áhugasamir einstaklingar, án tillit til kyns eru hvattir til að sækja um. Til greina kemur að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Gísladóttir leikskólastjóri í síma 433150.

 

 


Share: