Laust starf leikskólakennara í leikskólanum Andabæ

janúar 4, 2022
Featured image for “Laust starf leikskólakennara í leikskólanum Andabæ”

Komdu í lið með okkur!

Okkur vantar leikskólakennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% stöðu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli og Heilsuleikskóli síðan einnig erum við að vinna með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

Leikskólakennari vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra. Hann fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans.

MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla af uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Góð tölvukunnátta

FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ

Vinnutími: Dagvinna

Starfshlutfall: 100%

Starfsvið: Fjölskyldusvið

Umsóknarfrestur: 24. janúar 2022

Miðað er við að starfsmaður geti hafið störf í byrjun febrúar eða eftir nánara samkomulagi.

Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð. Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.  Öllum umsóknum verður svarað.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetjum við áhugasama um að sækja um óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.

Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 433-7170.


Share: