Laust starf bókara

maí 6, 2021
Featured image for “Laust starf bókara”

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.

Erum við að leita að þér?

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Færsla bókhalds.
  • Skráning og skönnun aðsendra reikninga, færsla á kostnaðarliði og umsjón með að reikningar fari til samþykktar á viðkomandi aðila.
  • Afstemmingar í bókhaldi.
  • Eftirlit með aðsendum reikningum.
  • Eftirfylgni með að reikningar frá lánadrottnum séu afgreiddir á réttum tíma.
  • Afleysingar á öðrum störfum á fjármálasviði.
  • Ýmis verkefni sem sviðsstjóri fjármálasviðs felur.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Bókhaldsnám er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta, þekking á Microsoft Dynamics 365 (Navision) bókhaldskerfi er kostur.
  • Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð.
  • Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið:

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.

Umsóknir skal senda á netfangið atvinna@borgarbyggd.is.- Borgarbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Öllum umsóknum verður svarað.

Vinnutími: Dagvinna

Starfshlutfall: 100%

Starfssvið: Fjármálasvið

Umsóknarfrestur er til og með: 19. maí 2021

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Ólafsson sviðsstjóri fjármálasviðs á netfanginu: eirikur@borgarbyggd.is  eða í símanúmer: 433-7100

 


Share: