Nýtt þjónustuver og breyttur opnunartími

janúar 15, 2021
Featured image for “Nýtt þjónustuver og breyttur opnunartími”

Frá og með 18. janúar nk. tekur til starfa nýtt þjónustuver Borgarbyggðar.

Á síðasta ári fór sveitarfélagið í viðamikla rýnivinnu og ferlagreiningu á stjórnsýslu sveitarfélagsins til að koma á úrbótum. Í kjölfarið voru innleiddar skipuritsbreytingar til að efla starfsemi sveitarfélagsins. Stofnað var nýtt svið innan sveitarfélagsins sem nefnist stjórnsýslu- og þjónustusvið þar sem lögð var áhersla á að auka faglega stjórnsýslu, skilvirkni og þjónustu gagnvart íbúum og gestum Borgarbyggðar.

Til þess að einfalda afgreiðslu erinda og auka gæði þjónustu var ákveðið að stofna nýtt þjónustuver. Hlutverk þjónustuversins er að veita hágæða þjónustu og að vera upplýsingaveita fyrir íbúa Borgarbyggðar og annarra sem leita til þjónustuversins, óháð þeirri leið sem erindi berast. Þjónustufulltrúar munu kappkosta að veita framúrskarandi þjónustu og upplýsingagjöf þar sem áhersla verður lögð á að leysa erindi jafnóðum við fyrstu snertingu. Þannig verður leitast við að stytta afgreiðslutíma erinda og einfalda boðleiðir.  

Opnunartími þjónustuversins lengist meðfram þessum breytingum og verður nú frá kl. 09:30 til 15:00 alla virka daga. Það verður því opið í hádeginu frá og með 18. janúar nk. Þó skal hafa í huga að Ráðhúsið er áfram lokað fyrir utanaðkomandi gesti vegna Covid-19 til og með 17. febrúar. 

Auk þess hefur þjónustuverið fengið nýtt netfang, thjonustuver@borgarbyggd.is og þjónustuþegar eindregið hvattir til að nýta sér þann valmöguleika.

Samhliða þessum breytingum stendur einnig til að opna fyrir netspjall á heimasíðu Borgarbyggðar og verður það kynnt síðar.


Share: