Laus staða leikskólakennara í Klettaborg

nóvember 29, 2020
Featured image for “Laus staða leikskólakennara í Klettaborg”

Okkur vantar leikskólakennara sem vill vinna í góðum og traustum leikskóla. Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullu og faglegu starfi þar sem þroski og velferð barna er í fyrirrúmi.

Áhersluatriðin í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsuefling.

Menntun og færnikröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð færni í mannlegum samskiptum

Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar er fólk af báðum kynjum hvatt til að sækja um.

Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar 2021 eða eftir nánara samkomulagi.

Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.

Eldri umsóknir þarf að endurnýja hjá leikskólastjóra.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til 10. desember 2020.

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 433-7160.

Umsóknir með ferilskrá, meðmælendum og öðrum upplýsingum berist til leikskólastjóra á netfangið klettaborg@borgarbyggd.is eða á heimasíðu leikskólans www.klettaborg.leikskolinn.is


Share: