Flokkum rétt í grænu tunnuna

október 7, 2020
Featured image for “Flokkum rétt í grænu tunnuna”

Undanfarið hefur það aukist að flokkun íbúa í grænu tunnuna er ekki samkvæmt reglum Íslenska Gámafélagsins. Svartir eða ógegnsæir pokar flokkast sem sorp og eru ekki opnaðir eða settir inn á flokkunarlínuna hjá fyrirtækinu. Það sem kemur í ógegnsæum pokum fer því í sorp.

Verktakinn áskilur sér rétt til að tæma ekki grænar tunnur þar sem ekki er flokkað rétt.

Allt hráefni sem fer í grænu tunnuna þarf að vera í GLÆRUM pokum eða alls ekki í pokum.

Borgarbyggð hvetur íbúa til að huga að þessu, enda er það mikil sóun á vinnu við flokkun og hráefni til endurvinnslu ef þetta fer í sorp.

Leiðbeiningar um flokkun í grænu eru einfaldar og aðgengilegar hér.

 


Share: