Við forsetakosningar laugardaginn 27. júní 2020 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi
- Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
- Kjörfundur hefst kl. 09.00 og lýkur kl. 22:00.
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
- Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
- Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
- Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
- Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum
- Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7708.
Kjörstjórn Borgarbyggðar