Vinna hafin við hreinsun rotþróa í Borgarbyggð

júní 2, 2020
Featured image for “Vinna hafin við hreinsun rotþróa í Borgarbyggð”

Vakin er athygli á því að vinna er hafin við hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu. Það er fyrirtækið Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands sem sér um verkið skv. samningi.

Til að auðvelda hreinsunina þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi, það er að segja sjá til þess að hlið séu ólæst svo og merkja staðsetningu rotþróar.

Rotþrær eru hreinsaðar á þriggja ára fresti. Hægt er að sjá nánari upplýsingar hér.


Share: