Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd Borgarbyggðar vinnur að gerð markaðsstefnumótunar í samstarfi við markaðsstofuna Manhattan.
Verkefnið felst í að búa til heildstæða markaðsstefnumótun og aðgerðaráætlun fyrir Borgarbyggð sem spennandi stað til að búa á, starfa, reka fyrirtæki og heimsækja.
Lögð er áhersla á samtal við íbúa í sveitarfélaginu, fyrirtækin og hagsmunaaðila og er þessi könnun liður í því. Svör eru ekki rekjanleg og þeim verður ekki deilt með þriðja aðila.
Okkur þætti vænt um ef þú gæfir þér tíma til að svara eftirfarandi könnun.
Könnunin lokar á sunnudaginn 3.maí n.k.