
Áætlað er að opna fyrir móttöku tvo daga í viku tímabilið 20. – 30. apríl.
Opið verður á mánudag frá kl. 08:00-16:00 og þriðjudag frá 08:00-12:00. Viðskiptavinir eru beðnir um að merkja alla sína poka vel til að koma í veg fyrir rugling, þá biðjum við viðskiptavini um að virða fjarlægðarmörk milli einstaklinga og gæta þess að það séu alltaf tveir metrar á milli fólks. Fjöldi viðskiptavina í Öldunni verður takmarkaður og biðjum við um að aðeins einn komi inn í einu.
- Viðskiptavinum býðst að koma með talið og fá þá greitt strax.
- Þeir viðskiptavinir sem mæta með ótalið skilja sína poka eftir. Vegna smithættu er ekki talið strax heldur látið bíða í nokkra daga og greitt viku eftir móttöku.
|
Stærri sendingar
Stærri sendingar teljast vera 10 svartir ruslapokar eða fleiri. Við biðjum þá sem eru með stærri sendingar að hafa samband við okkur í síma 433-7441 til að finna tíma fyrir afhendingu.
|
|
Minnum á flokkun
Glerflöskur sér
————————————————–
Áldósir og plastflöskur saman
|
A.T.H Breytt aðgengi – Gengið er inn á hlið vinstra megin