Við leitum að öflugum einstaklingum í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2020
- Umsjónarkennsla á miðstigi
- Kennsla á unglingastigi, þarf að geta kennt flestar greinar.
Menntun, reynsla og hæfni:
- Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur.
- Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.
Óskað er eftir einstaklingum sem er tilbúnir að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi og hefur hugrekki til þess að feta nýjar leiðir.
Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með um 300 nemendur í 1.–10. bekk og tekur virkan þátt í skólasamfélagi Borgarbyggðar. Skólinn er Uppbyggingarskóli ásamt því að vera í teymiskennslu.
Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2020
Umsóknir skal senda til Júlíu Guðjónsdóttur skólastjóra, julia@grunnborg.is einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 862-1519.