Sálfræðingur óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar

febrúar 26, 2020
Featured image for “Sálfræðingur óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar”

Staða sálfræðings hjá Félagsþjónustu Borgarbyggðar er laus til umsóknar.

Um er að ræða 60- 100% starf. Störf sálfræðings eru á sviði barnaverndarnefndar og velferðarnefndar. Borgarbyggð þjónustar einnig Dalabyggð og Skorradal um barnavernd, félagsþjónustu og í málefnum fólks með fötlun.

Starfssvið sálfræðings

  • Greining og meðferð barnaverndarmála
  • Einstaklings og fjölskyldumál fyrir félagsþjónustu, þ.m.t. þjónusta við fatlaða
  • Þverfagleg teymisvinna með stofnunum, s.s. skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna einstaklinga og fjölskyldna
  • Annast fræðslu fyrir stofnanir sveitafélagsins s.s. skóla, leikskóla og aðrar þjónustustofnanir, um barnavernd og aðra faglega þætti er lúta að sviði sálfræðings

 Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi sem sálfræðingur
  • Þekking og reynsla á sviði barnaverndar, félagsþjónustu og af vinnu með fólki með fötlun
  • Reynsla af meðferð fjölskyldumála
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni í þverfaglegu samstarfi

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um óháð kyni og uppruna.  

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til borgarbyggd@borgarbyggd.is fyrir 15. mars 2020.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsmálastjóri í síma 433 7100, netfang: vildis@borgarbyggd.is

 


Share: