Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð

janúar 28, 2020
Featured image for “Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð”

Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð fyrir árið 2020. 

Álagningarseðlar verða sendir til fasteignaeigenda sem eru 72 ára og eldri og til fyrirtækja. Nánari upplýsingar um gjöldin eru á heimasíðu sveitarfélagsins, undir gjaldskrár:  https://www.borgarbyggd.is/is/stjornsysla/fjarmal/gjaldskrar

Allir álagningarseðlar eru á https://www.island.is/ undir  Mínar síður / Pósthólf.

Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti 21. janúar og síðan 15. hvers mánaðar fram í október.

Eindagi er fimmtánda dag næsta mánaðar eftir gjalddaga.

Greiðsluseðlar verða sendir til þeirra sem eru 72 ára eða eldri og þeirra sem þegar hafa óskað eftir að fá þá senda til sín. 

Allir greiðsluseðlar eru sendir í heimabanka greiðanda.

Þeir sem eru orðnir 72 ára geta afþakkað álagningarseðla og greiðsluseðla á pappír. 

Vinsamlega hafið samband við skrifstofu Borgarbyggðar ef óskað er breytinga á ofangreindu fyrirkomulagi, annað hvort í síma: 433-7100 eða á netfanginu borgarbyggd@borgarbyggd.is

Ef gjaldendur telja álagninguna ekki rétta er hægt að fara fram á endurálagningu með rökstuddum hætti. Skrifleg beiðni þar um skal berast skrifstofu Borgarbyggðar eigi síðar en mánuði eftir álagningu gjaldanna.    

Borgarnesi 21. janúar 2020

Skrifstofa Borgarbyggðar


Share: