Vilt þú vera sveitarstjóri Borgarbyggðar?

desember 11, 2019
Featured image for “Vilt þú vera sveitarstjóri Borgarbyggðar?”

Borgarbyggð óskar eftir að ráða framsækinn einstakling í starf sveitarstjóra. Í sveitarfélaginu eru mikil tækifæri til vaxtar og leitað er að aðila sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta framtíðarsýn þess og stuðla að uppbyggingu samfélagsins.

Helstu verkefni

  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu
  • Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar og byggðarráðs
  • Hagsmunagæsla og samskipti við íbúa, stofnanir, samtök og fyrirtæki

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Farsæl reynsla af stjórnun, mannauðsmálum, stefnumótun og rekstri
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélags er æskileg
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skilningur á rafrænni stjórnsýslu og markaðshugsun
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Aðrar upplýsingar

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 28. desember 2019.

 


Share: