Hunda- og kattahreinsun 2019

nóvember 7, 2019
Featured image for “Hunda- og kattahreinsun 2019”

Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð sem hér segir:

Borgarnesi 11. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka.

  • Fyrir hunda kl. 16:30 -19:00.
  • Fyrir ketti kl. 19:15 – 20:15.

Bifröst 13. nóvember í kyndistöðinni kl. 16:30 – 18:00.

  • Gunnar Gauti Gunnarsson annast hreinsunina ofangreinda daga.

Borgarnesi 19. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka kl. 17:00 – 19:00.

  • Margrét Katrín Guðnadóttir annast hreinsunina.

Hvanneyri 20. nóvember í “gamla BÚT-húsinu” kl. 16:30 – 19:00. 

  •  Edda Þórarinsdóttir annast hreinsunina ofangreinda daga.

Lögum samkvæmt skulu allir hundar, kettir og kanínur að vera örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn, www.dyraaudkenni.is. Skráningarskylda er á öllum hundum og köttum í þéttbýli Borgarbyggðar.

Skylt er að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri árlega, ormahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi sveitarfélagsins. Óskráð gæludýr eru velkomin og geta eigendur nálgast skráningargögn á staðnum.

 Þeir sem ekki nýta sér þessa þjónustu þurfa að skila vottorði fyrir áramót um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar. Eftirtaldir dýralæknar eru starfandi í Borgarbyggð:




Gunnar Gauti Gunnarsson, s. 892 – 3230

Gunnar Örn Guðmundsson, s. 892 – 0030

Hildur Edda Þórarinsdóttir, s. 892 – 3552

Kristín Þórhallsdóttir  s. 863 – 7372

Margrét Katrín Guðnadóttir- s. 898 – 0034

Harpa Ósk Jóhannesdóttir- s. 865-2781

 

Upplýsingar gæludýrahald í Borgarbyggð er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar.

Þá er hægt að hafa samband við Ráðhús í síma 4337100 eða gegnum netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.


Share: