Bilun í tölvupósti

september 19, 2019
Featured image for “Bilun í tölvupósti”

Uppgötvast hefur bilun sem virðist hafa truflað tölvupóstkerfi Borgarbyggðar í síðustu viku. Póstar sem sendir voru til Borgarbyggðar frá Gmail og hugsanlega öðrum póstþjónustum virðast ekki hafa skilað sér. Þetta á við um öll netföng sem bera endinguna @borgarbyggd.is, jafnt starfsfólk sem kjörna fulltrúa.

Ef þig er farið að lengja eftir svari, þá viljum við vinsamlegast biðja þig um að senda póstinn aftur þar sem vera kann að hann hafi ekki borist til viðtakanda. Beðist er velvirðingar á þessu.

Kveðjur, starfsfólk Borgarbyggðar


Share: