Skákdagurinn á Íslandi

janúar 25, 2012
Fimmtudaginn 26. janúar er skákdagurinn á Íslandi. Stefnt er að því að fá sem flesta að tafli um allt land til heiðurs Friðriki Ólafssyni stórmeistara, en 26. janúar er fæðingardagur hans.
Skákfélagar í UMSB hafa fengið stórmeistarann Helga Ólafsson til að koma og tefla fjöltefli í Hyrnutorgi kl 16.00. Vonast er eftir að sem flestir komi og reyni sig við meistarann. Í hádeginu verður sundlaugin í Borgarnesi skákvædd þegar Tinna Kristín Finnbogadóttir og Jóhann Óli Eiðsson afhenda tafl frá Skákakademíunni og vígja það í heita pottinum.
 

Share: