Styrkir vegna íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundamála

janúar 24, 2012
Borgarbyggð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamála á árinu 2012. Um styrki geta sótt félög og aðrir aðilar sem sinna íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi.
Umsókn þarf að fylgja yfirlit yfir fjárhagsstöðu ársins 2011, yfirlit yfir fjölda virkra iðkenda og aldursskiptingu þeirra, fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og áætlanir um umfang starfsins á árinu 2012.
Úthlutunarreglur má finna á vef Borgarbyggðar http://www.borgarbyggd.is/Files/Skra_0034528.pdf og í afgreiðslu Ráðhússins.
Umsóknir og fylgigögn berist fræðslustjóra, í Ráðhús Borgarbyggðar, fyrir 16. febrúar 2012.
 
 

Share: