Safnahús: sumarlestur barna

júní 12, 2019
Featured image for “Safnahús: sumarlestur barna”

Héraðsbókasafn Borgarfjarðar efnir nú í 12. sinn til sumarlesturs fyrir börn.  Tímabil lestursins er frá 10. júní – 10. ágúst. Fyrir skömmu afhenti Ragnheiður Guðrún Jóhannesdóttir Sævari Inga héraðsbókaverði  teikningu sína af einkennismynd verkefnisins en þetta er annað árið í röð sem hún teiknar hana.  Ragnheiður Guðrún var að ljúka námi í 10. bekk Grunnskólans í Borgarnesi og hyggur á menntaskólanám í haust.


 


Öll börn á aldrinum 6-12 ára geta skráð sig í sumarlesturinn og  tekið bækur að eigin vali til lestrar sér að kostnaðarlausu.  Sérstakir happamiðar fara í pott fyrir hverja lesna bók en auk þess fá allir þátttakendur viðurkenningu  í lok sumars á Uppskeruhátíð sumarlesturs.


 


Markmið verkefnisins er sem fyrr að viðhalda lestrarfærninni sem börnin öðlast um veturinn en um leið er lögð áhersla á að börnin lesi það sem þau sjálf langar til, hvort sem um er að ræða bók á sérstöku áhugasviði eða góða sögubók. 


 


Öll börn geta gerst lánþegar.  Æskilegt er að þau yngstu komi í fylgd fullorðinna fyrstu skiptin. Opið verður á bókasafninu alla virka daga í sumar frá 13 -18.


 


Sumarið er góður tími fyrir bóklestur, sama hvernig viðrar


 


Ljósmynd: Sumarlestrarmynd Ragnheiðar Jóhannesdóttur


Share: