Leikskólinn Andabær óskar eftir leikskólakennara.

maí 13, 2019
Featured image for “Leikskólinn Andabær óskar eftir leikskólakennara.”

Okkur vantar leikskólakennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% framtíðar stöðu. Einnig vantar í 100% afleysingastöðu í eitt ár v/ fæðingarorlofs.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli, Heilsuleikskóli og vinnum með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.

Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara:

Leikskólakennari fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.

Menntun og færnikröfur:

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru konur og karlar hvött til að sækja um. Ráðið er í starfið frá og með 8. ágúst 2019 eða eftir nánara samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til 24. maí 2018.

Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.

Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4337170

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til leikskólastjóra á netfangið andabaer@borgarbyggd.is eða inni á heimasíðu skólans http://andabaer.leikskolinn.is/ undir upplýsingar/starfsumsókn.


Share: