Leikskólinn Andabær, Hvanneyri- staða sérkennslustjóra laus til umsóknar.

maí 13, 2019
Featured image for “Leikskólinn Andabær, Hvanneyri- staða sérkennslustjóra laus til umsóknar.”

Um er að ræða 75% stöðu sérkennslustjóra og 25% staða sérkennara.

Sérkennslustjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra og öðrum lögum sem við eiga, aðalnámskrá leikskóla, stefnu viðkomandi sveitarfélags og skólanámskrá leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar ásamt leikskólastjóra.
  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
  • Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa/sérkennslufulltrúa leikskóla og starfsmanna leikskólans.
  • Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Reynsla af sérkennslu
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta.

Starfslýsing sérkennslustjóra:

http://ki.is/kjaramal/kaup-kjor/kjarasamningar/felag-leikskolakennara#sérkennslustjóri

Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri, asta@borgarbyggd.is Einnig er hægt að hafa samband í s:433 7170/8464341

-Ráðið er í starfið frá og með 8. ágúst 2019

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi sveitafélag.

Umsóknarfrestur er til og með 24. mai 2019

Umsóknir skulu sendar rafrænt á andabaer@borgarbyggd.is

Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.


Share: