Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar

janúar 7, 2019
Featured image for “Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar”

Félagsþjónusta Borgarbyggðar óskar eftir félagsráðgjafa til starfa. Um er að ræða 80-100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna innan félagsþjónustu.
  • Vinnsla barnaverndarmála.
  • Þjónusta og ráðgjöf við fólk með fötlun og þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu s.s. með skólum, leikskólum og öðrum þjónustu-stofnunum vegna málefna fullorðinna einstaklinga, barna og fjölskyldna.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi sem félagsráðgjafi.
  • Þekking og reynsla af vinnu á sviði félagsþjónustu, barnaverndar og meðferð fjölskyldumála.
  • Þekking og reynsla af vinnu með fólki með fötlun æskileg.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu.

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til vildis@borgarbyggd.is fyrir 21. janúar nk.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsmálastjóri í síma 433-7100/ 8620814, vildis@borgarbyggd.is og Anna Magnea Hreinsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 840-1522 annamagnea@borgarbyggd.is


Share: