Starfsmann vantar í Andabæ

júlí 3, 2018
Featured image for “Starfsmann vantar í Andabæ”

Leikskólinn Andabær á Hvanneyri

Komdu í lið með okkur!

Okkur vantar leikskólakennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% stöðu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli síðan 2005, Heilsuleikskóli síðan 2013, einnig erum við að vinna með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.

Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara:

Leikskólakennari fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deldarstjóra.

Menntun og færnikröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru fólki af báðum kynjum hvött til að sækja um. Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2018 eða eftir nánara samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2018.

Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.

Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4337170

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til leikskólastjóra á netfangið andabaer@borgarbyggd.is

 


Share: