Leikskólinn Andabær- deildarstjóri

apríl 24, 2018
Featured image for “Leikskólinn Andabær- deildarstjóri”

Komdu í lið með okkur!

Okkur vantar deildarstjóra í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% stöðu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli síðan 2005, Heilsuleikskóli síðan 2013, einnig erum við að vinna með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.

Helstu verkefni og ábyrgð deildarstjóra:

Deildarstjóri er þátttakandi í stjórnunarteymi skólans ásamt leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra, sérkennslustjóra og öðrum deildarstjórum. Deildarstjóri fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er leiðandi í faglegri umræðu. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn leikskólastjóra.

Menntun og færnikröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Færni í að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.

Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Ráðið er í starfið frá og með 1. júní 2018 eða eftir nánara samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til 8. maí 2018.
Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri eða Áslaug Ella Gísladóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 4337170

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til leikskólastjóra á netfangið andabaer@borgarbyggd.is


Share: