Konur óskast til starfa við sundlaugina í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst. Helstu verkefni:
- Öryggisgæsla.
- Afgreiðslustörf.
- Aðstoð við viðskiptavini.
- Þrif.
Hæfniskröfur:
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Standast hæfnispróf sundstaða.
- Með góða þjónustulund.
Vinnufyrirkomulag:
- 100% starf sem unnið er í vaktavinnu. Unnið er þriðja hvora helgi.
Umsóknafrestur er til 10. apríl 2018. Nánari upplýsingar veitir Ingunn Jóhannesdóttir forstöðumaður íþróttamannvirkja Borgarbyggðar, netfang: ingunn28@borgarbyggd.is