Tímabundið starf slökkviliðsstjóra

janúar 17, 2018
Featured image for “Tímabundið starf slökkviliðsstjóra”

Auglýst er eftir slökkviliðsstjóra til tímabundinna starfa fyrir Borgarbyggð

Borgarbyggð óskar eftir að ráða slökkviliðsstjóra til starfa tímabundið í sex mánuði vegna forfalla.  Um er að ræða afleysingastarf sem felst í stjórnun, útköllum og öðrum almennum störfum slökkviliðsins.

Slökkviliðsstjóri stjórnar og ber daglega ábyrgð á Slökkviliði Borgarbyggðar og aðstoðarslökkviliðsstjóri í forföllum hans. Hann ber ábyrgð á að starfsemin sé í samræmi við lög og reglugerðir og hefur bakvaktaskyldu utan dagvinnutíma í samvinnu við aðstoðarslökkviliðsstjóra.

Hæfniskröfur:

  • Löggiltur slökkviliðsmaður með a.m.k. 4 ára starfsreynslu
  • Þekking og þjálfun í brunamálum og á sviði brunavarna
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærileg menntun
  • Skipulagshæfni og fagmennska

Starfssvið:

  • Stjórnun og rekstur Slökkviliðs Borgarbyggðar
  • Eldvarnareftirlit
  • Almannavarnir

Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu sendar til borgarbyggd@borgarbyggd.is

Nánari upplýsingar veita Bjarni K. Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í síma 437-2222 bjarnikr@borgarbyggd.is og Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri í síma 433-7100 gunnlaugur@borgarbyggd.is

Umsóknarfrestur er til 31. janúar nk.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.


Share: