Staða leikskólastjóra leikskólans Andabæjar er laus til umsóknar

desember 6, 2017
Featured image for “Staða leikskólastjóra leikskólans Andabæjar er laus til umsóknar”

Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólastjóra hjá leikskólanum Andabæ á Hvanneyri, sem er þriggja deilda leikskóli í afar fallegu umhverfi.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Stjórnunarreynsla
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni og fagmennska

Starfssvið:

  • Stjórnar daglegri starfsemi og ber ábyrgð á faglegu starfi og rekstri leikskólans í samræmi við markmið laga um leikskóla
  • Ber ábyrgð á skipulagi skólastarfs í samstarfi við foreldra, starfsfólk skólans og skólayfirvöld
  • Ber ábyrgð á mannauðsmálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun

Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu sendar til  borgarbyggd@borgarbyggd.is.

Umsóknarfrestur er til 20. desember n.k.

Nánari upplýsingar veitir Anna Magnea Hreinsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, annamagnea@borgarbyggd.is, sími: 840-1522.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar sem konur hvött til að sækja um starfið.


Share: