Úr pósti Þjóðskrár til sveitarfélaga.
Líkt og flestum er kunnugt um hefur verið ákveðið að ganga til Alþingiskosninga þann 28. október nk. Samkvæmt a lið 1. mgr. 23 gr. laga um kosningar til Alþingis er viðmiðunardagur kjörskrárstofns 5 vikum fyrir kjördag sem þýðir að viðmiðunardagur að þessu sinni er 23. september sem er næstkomandi laugardagur.
Mikilvægt er því að allar þær breytingar sem þarf að gera á skráningu lögheimilis verði gerðar fyrir lok föstudagsins 22. september. Þær lögheimilisbreytingar sem berast eftir viðmiðunardag fara ekki inn á kjörskrárstofn.