Félagsmiðstöðin Óðal – laus störf

júlí 7, 2017
Featured image for “Félagsmiðstöðin Óðal – laus störf”

Óskað er eftir frístundaleiðbeinendum í félagsmiðstöðina Óðal veturinn 2017-2018. Markhópur félagsmiðstöðva eru unglingar á aldrinum 13-16 ára. Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er síðdegis og á kvöldin. Helstu verkefni og ábyrgð Leiðbeina unglingum í leik og starfi. Umsjón og undirbúningur á faglegu félagsmiðstöðvastarfi í samvinnu við tómstundafulltrúa. Samráð og samvinna við unglinga og starfsfólk skóla. Samskipti við foreldra/forráðamenn. Hæfniskröfur Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri. Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi. Áhugi á að vinna með börnum og unglingum. Frumkvæði  og sjálfstæði. Færni í mannlegum samskiptum. Frekari upplýsingar um starfið Launakjör í eru samkvæmt kjarasamningi Kjalar og Launanefndar sveitafélaga. Starfshlutfall er frá 30-50%.   Umsóknafrestur til og með 28. júlí 2017   Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir, tómstundafulltrúi í síma 869-8646 eða á netfanginu siggadora@umsb.is


Share: