Endurbótum á sundlauginni á Varmalandi lauk í síðustu viku og er hún nú opin almenningi. Skipt var um dúk á lauginni og öryggismyndavélar settar upp. Um verkið sáu Á.Óskarsson og Vatnsverk ehf. sem sá um lagnavinnu. Pétur Oddson og Guðjón Guðlaugsson sáu um smíðavinnu. Opnunartíma sundlaugarinnar má finna hér: https://borgarbyggd.is/opnunartimar/ en hún er opin alla daga frá 9 – 18.