Síðbúin jólatrjáasöfnun

janúar 16, 2008
Vegna fjölda áskorana mun Borgarbyggð standa fyrir síðbúinni hreinsun jólatrjáa föstudaginn 18. janúar og mánudaginn 21. janúar næstkomandi.
Hreinsað verður í Borgarnesi, á Hvanneyri og á Bifröst.
Íbúar sem enn eiga eftir að losa sig við sín jólatré, geta sett þau á gangstéttar framan við hús sín og munu þau verða hirt upp ofangreinda daga.
Það er HS-verktak í Borgarnesi sem mun annast verkið.
Íbúar eru vinsamlegast beðnir að setja ekki jólatré út á gangstéttar, eftir þennan tilgreinda tíma.
 
Mynd: Björg Gunnarsdóttir
 

Share: