Samstarf undir merkjum menningarstefnu

apríl 21, 2017
Featured image for “Samstarf undir merkjum menningarstefnu”

Safnahús og Tónlistarskóli Borgarfjarðar stóðu fyrir tónleikum á sumardaginn fyrsta,  þar sem nemendur skólans fluttu frumsamin verk sín við ljóð Halldóru B. Björnsson frá Grafardal. Verkefnið var stutt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Það hefur verið í undirbúningi síðan í september s.l. og hafa nemendurnir sett orð í tóna undir handleiðslu kennara sinna.  Fjölmenni var á tónleikunum þar sem flutt voru hátt á anna tug verka.

Um þessar mundir eru liðin 110 ár frá fæðingu Halldóru.  Voru fulltrúar fjölskyldu hennar viðstaddir tónleikana, m.a. dóttir hennar Þóra Elfa Björnsson sem var Safnahúsi innan handar við val á ljóðum í ljóðahefti og formála að því.  Hefur hún áður komið að ýmsum fræðiverkefnum fyrir Safnahús.

Þetta er í fimmta sinn sem Safnahús og Tónlistarskóli vinna saman undir vinnuheitinu „Að vera skáld og skapa“  Markmiðið er að miðla bókmenntaarfinum og hvetja til listsköpunar ungs fólks samkvæmt menningarstefnu Borgarbyggðar.  Áður hafa þessi skáld verið til umfjöllunar:   Guðrún Jóhannsdóttir (1892-1970), Guðrún Halldórsdóttir (1848-1930), Sigríður Helgadóttir (1884-1977), Valdís Halldórsdóttir (1908-2002), Guðrún Halldórsdóttir yngri (1912-2006), Guðmundur Böðvarsson (1904-1974) og Snorri Hjartarson (1906-1986).

Þess má einnig geta að nemendur frá Tónlistarskólanum komu einnig fram í Safnahúsi þann 22. mars s.l. þegar opnuð var sýning á ljósmyndum frá Borgarnesi. Þar fluttu þeir nýtt lag og texta eftir skólastjóra skólans, Theodóru Þorsteinsdóttur. (GJ)

 


Share: