Dagana 18. – 27. apríl eru íbúar í Borgarbyggð hvattir til að taka til hendinni og fegra nánasta umhverfi sitt.
Skólar, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar eru hvött til að taka þátt í hreinsunarátakinu á fjölbreyttan hátt.
Fyrir annan úrgang sem til fellur við tiltektina er opið á gámastöðinni Sólbakka alla virka daga frá kl. 14:00 – 18:00, á laugardögum frá kl. 10:00 – 14:00 og sunnudögum frá kl. 14:00 – 18:00. Allir geta nálgast svarta ruslapoka í skólunum, í Öldunni og Húsasmiðjunni í Borgarnesi.
Þessa daga er ýmislegt í gangi:
- Kaupfélag Borgfirðinga – 20% afsláttur af garðverkfærum, strákústum og ruslapokum.
- Húsasmiðjan verður með fjölbreytt tilboð meðan á átakinu stendur.
- Kaffispjall um garðrækt í Hjálmakletti 18. apríl kl. 20:00. Sædís Guðlaugsdóttir í Gleym-mér-ei veitir ráðgjöf og svarar spurningum um allt milli himins og jarðar sem tengist garðrækt.
- Gleym-mér-ei býður ókeypis ráðgjöf í heimagörðum í Borgarnesi. Pantanir í síma 894-1809.
Minnt er á að lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka og íbúar eru hvattir til að huga að því sérstaklega við götur og gangstíga og stuðla þannig að auknu öryggi vegfarenda.
Gámar fyrir garðúrgang og óflokkaðan verða á eftirtöldum stöðum:
Grunnskólinn í Borgarnesi
Ráðhúsið
Skallagrímsgarður v. Íþróttamiðstöð
Menntaskóli Borgarfjarðar
Klettaborg
Ugluklettur
Hraunborg
GBF Varmalandi
Hnoðraból
GBF Kleppjárnsreykjum
Andabær-Hvanneyri