Málþing um framtíð ferðaþjónustu í Borgarbyggð verður haldið í Hjálmakletti miðvikudaginn 23. nóvember kl. 18:00 – 22:00.
Framsöguerindi frá kl. 18:00 til 19:30:
- Setning málþingsins; Guðveig Eyglóardóttir formaður starfshóps um ferðamál í Borgarbyggð
- Fjárhagsleg tengsl ferðaþjónustu og Borgarbyggðar; Vífill Karlsson atvinnuráðgjafi hjá SSV
- Framtíðarsýn ferðaþjónustu í Borgarbyggð; Guðveig Eyglóardóttir hótelstýra Bifröst og formaður starfshóps um ferðamál í Borgarbyggð
- Skipulagsvinna og þróun ferðaþjónustu; Ragnar Frank Kristjánsson lektor LBHÍ
- Saga Jarðvangur, markmið, staða og framtíð; Þórunn Reykdal stjórnarformaður Saga jarðvangur
- Áskoranir ferðaþjónustunnar; Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður hjá Ferðamálastofu
- Hvert viljum við stefna? Runólfur Ágústsson ráðgjafi
Möguleiki er á stuttum spurningum eftir hvert erindi.
Léttur kvöldverður frá 19:30-20:00
Umræðuhópar frá kl. 20:00-21:30.
Styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri fyrir dreifbýli og þéttbýli í tengslum við þróun ferðaþjónustunnar í Borgarbyggð.
Samantekt á niðurstöðum umræðuhópa kl. 21:30-22:00
Málþinginu slitið