Ný heimasíða Borgarbyggðar

maí 18, 2016
Featured image for “Ný heimasíða Borgarbyggðar”

Nú hefur ný heimasíða Borgarbyggðar litið dagsins ljós. Síðan er unnin í WorldPress af Aroni Hallssyni vefhönnuði hjá Tækniborg ehf. Meginmarkmiðið með nýrri heimasíðu er að gera upplýsingagjöf til notenda skilvirkari. Sem lið í því þá hefur verið tekin í notkun sérstök íbúagátt þar sem notendur hafa á einum stað öll sín mál. Þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Þess er að vænta að einhverjir hnökrar komi í ljós á næstu dögum og biðjum við notendur að sýna biðlund á meðan. Hönnuði og öllum sem komið hafa að gerð síðunnar eru færðar þakkir fyrir og er þess vænst að þessi breyting falli í góðan jarðveg. Í framhaldinu munu aðrar stofnanir Borgarbyggðar fá nýjar heimasíður byggðar á sama kerfi.


Share: