Vinnuskóli Borgarbyggðar er fyrir 14-16 ára unglinga sem hafa nýlokið 8., 9. eða 10. bekk. Markmið vinnuskólans er að leiðbeina unglingum og kenna þeim öguð og rétt vinnubrögð við fjölbreytt störf. Umsögn er gefin í lok vinnuskólans.
Dagskrá
Nemendur vinnuskólans geta valið um eftirfarandi störf:
- Almenn garðyrkjustörf, gróðursetning og hirðing á opnum svæðum.
- Störf hjá stofnunum Borgarbyggðar, svo sem leikskólum og íþróttamiðstöðvum.
- Störf hjá félögum.
- Störf í Sumarfjöri og Tómstundaskóla.
Hver nemandi gegnir hverju starfi að lágmarki fjórar vikur.
Skráning
Forráðamenn þurfa að skrá ungmenni í vinnuskólann. Skráning fer fram hjá UMSB og má nálgast umsóknareyðublað hér. Umsóknarfrestur er til 9. maí.
Dagsetningar
Skólinn hefst 6. júní og lýkur 29. júlí.
Vinnutími
Unnið er frá kl. 9-12 og 13-16 nema á föstudögum til kl.12.
Laun
Laun í Vinnuskólanum sumarið 2016 verða sem hér segir:
- 14 ára (fædd 2002) kr. 497 klst.
- 15 ára (fædd 2001) kr. 663 klst.
- 16 ára (fædd 2000) kr. 829 klst.
Að auki er greitt 10% orlof.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir, siggadora@umsb.is