Laus störf við leikskóla Borgarbyggðar

september 4, 2006
Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi
Leikskólakennara vantar tímabundið til starfa við leikskólann Klettaborg. Um er að ræða ca 80% starf í Klettaborg og 50% starf fyrir hádegi í Mávakletti. Störfin eru laus nú þegar og ráðið verður í þau út leikskólaárið.
 
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 437-1425 eða á netfanginu klettaborg@borgarbyggd.is.
 
Leikskólinn Andabær á Hvanneyri
Um er að ræða 100% starf í leikskólanum Andabæ. Starfið er laust nú þegar og verður ráðið í það til frambúðar.
Leikskólinn Andabær er 3ja deilda leikskóli á Hvanneyri. Þar er um 40 börn og 10 starfsmenn.
 
Nánari upplýsingar veitir Valdís Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 437-0120 eða á netfanginu andabaer@borgarfjordur.is.
 
 
 
Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögðum vinnubrögðum.
 
Fáist ekki leikskólakennarar kemur til greina að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.
 
 

Share: