Skallagrímur byrjar vel !

október 22, 2004
Um 400 manns urðu vitni að frábærum sigri Skallagríms á Grindavík 81-80 í Intersportdeildinni í gærkvöldi í íþróttamiðstöðinni Borgarnesi.
Leikurinn var æsispennandi og gefur góðar vonir um áframhaldandi skemmtun á íþróttasviðinu í vetur.
Takið því leikdaga frá í vetur og mætið í íþróttahúsið með alla fjölskylduna til að hvetja liðið okkar. Áfram Skallagrímur!
 
 

Share: