Sparisjóðurinn afhendir Mími skjávarpa.

desember 12, 2003
Fulltrúi Sparisjóðs Mýrasýslu kom færandi hendi í Mími félagsmiðstöð ungmenna í Borgarbyggð í gærkvöldi.
Guðrún Daníelsdóttir fulltrúi bankans afhenti Mími fullkomin skjávarpa að gjöf og kemur hann sér vel í starfið þar.
“Þetta er góð gjöf frá SM inn í starfið á þriggja ára afmæli Mímis ungmennahúss” sagði formaður innra starfs Mímis Gunnar Aðils Tryggvason þegar hann þakkaði fyrir hönd húsráðs fyrir gjöf þessa á kaffihúsakvöldi í Mími á fimmtudagskvöldið.
Til gamans má geta þess að nú eru ein 11 ungmennahús starfandi fyrir aldurinn 16 – 25 ára í sveitarfélögum landsins og ein 5 í bígerð sem hefja starf á næsta ári.
Reynslan hefur sýnt að þörf er á menningar og upplýsingamiðstöðum sem þessum þar sem þessi aldurshópur getur komið saman í margskonar félagsstarfi og fengið upplýsingar um margvísleg mál sem snerta þennan aldur.
Elsta upplýsingamiðstöð landsins sem sérhæfð er fyrir þennan aldurshóp er Hitt húsið í Reykjavík sem hóf starfsemi sína 1991 og hefur því starfað sem ráðgjafar og upplýsingarmiðstöð í 12 ár. Módel sem víða hefur verið fyrirmynd erlendis. Þar er einnig atvinnumiðlun ungmenna auk margvíslegs starfs sem þar fer fram.
 
ij.

Share: