Kjörskrá til sveitarstjórnakosninga

apríl 22, 2002

Vakin er athygli á að kjörskrá til sveitarstjórnarkosninga sem fram eiga að fara 25. maí n.k. miðast við skráð lögheimili manna eins og það er 4. maí 2002.
Þeir sem flutt hafa búferlum nýverið eða eru ekki rétt skráðir í íbúaskrá eru hvattir til að ganga sem fyrst frá tilkynningu um flutninginn á bæjarskrifstofunni að Borgarbraut 11, Borgarnesi.


Share: