Nú líður að því að nýtt aðalskipulag Borgarbyggðar verði auglýst formlega. Þetta verður í þriðja og síðasta skiptið sem íbúum gefst tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum við skipulagstillöguna. Síðasta vor var skipulagið kynnt á fimm íbúafundum um allt sveitarfélagið og fólk hvatt til að koma með óformlegar athugasemdir. Úr þessum athugasemdum var unnið og síðan var skipulagið kynnt lögformlegum umsagnaraðilum en jafnframt var tekið við skriflegum athugasemdum íbúa. Nú hefur verið unnið úr þeim athugasemdum. Þá er komið að síðasta auglýsingatímabilinu en það hefst á næstu vikum og stendur í rétta tvo mánuði. Hver sem er getur gert athugasemdir við skipulagið á þessum tíma og ber sveitarfélaginu að svara öllum athugasemdum skriflega með rökstuðningi. Að því loknu verður óskað staðfestingar umhverfisráðherra og skipulagið tekur gildi.
Aðalskipulagið er niðurstaða mikillar vinnu. Greinargerð skipulagsins er tæpar 100 blaðsíður auk umhverfisskýrslu. Þessum skýrslum fylgja þrjú þemakort (göngu- og reiðleiðir, vernduð svæði, óbyggð svæði) og fimm þéttbýliskort (Borgarnes, Bifröst, Hvanneyri, Kleppjárnsreykir, Reykholt og Varmaland).
Ástæða er til að vekja athygli íbúa sérstaklega á eftirfarandi atriðum:
Hverfisvernd húsa setur ákveðna verndarskilmála á hluta gamla bæjarins í Borgarnesi.
Flóðasvæði: Takmarkanir eru settar á uppbyggingu húsa á svæðum sem liggja neðar en í fimm metra hæð yfir sjó.
Verndun landbúnaðarlands: Ákveðnar takmarkanir eru settar á nýtingu „góðs landbúnaðarlands“. Hafa þarf í huga að enn er unnið að lokaútfærslu þessara ákvæða.
Ofangreind atriði eru nýmæli hér í héraðinu og þess vegna er vakin sérstök athygli á þeim. Hins vegar eru fjöldamörg stefnumarkandi atriði í skipulaginu og það er von sveitarstjórnar að með þessu skipulagi skapist nauðsynlegur rammi um framtíðar byggðaþróun í héraðinu.
Allir íbúar Borgarbyggðar eru hvattir til að fara inn á vefinn www.landlinur.is og kynna sér greinargerðina og kortin. Þeim sem ekki geta nálgast gögnin á vefnum er bent á að hafa samband við starfsfólk í ráðhúsi sveitarfélagsins.
Torfi Jóhannesson, formaður skipulags- og bygginganefndar