Menningarráð Vesturlands auglýsir styrki

desember 9, 2010
Menningarráð Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsársins 2011.
Upplýsingar um styrkina eru á heimasíðu verkefnisins www.menningarviti.is Einnig veitir menningarfulltrúi frekari upplýsingar í síma 4332313 / eða 8925290 eða í tölvupósti menning@vesturland.is Umsóknarfrestur rennur út 20. desember 2010.
 
Áherslur Menningarráðs vegna styrkveitinga eru eftirfarandi:
 
* Verkefni sem draga fram sérkenni og menningu Vesturlands.
* Verkefni sem styðja menningartengda ferðaþjónustu og auka atvinnu.
* Menningarstarf sem stuðlar að nýsköpun,eykur listrænt starf og frumkvöðlastarf.
* Verkefni sem eflir samstarf milli svæða í menningarmálum og menningarferðaþjónustu.
*Verkefni sem hvetja til listræns samstarfs eldri- og yngri borgara Vesturlands.
* Verkefni sem efla fræðslu í listrænum og menningarlegum tilgangi.

Share: