
Söfnun á rúlluplasti verður vikuna 9.–13. nóvember
Mikilvægt um söfnun á þessum dögum
- Halda þarf öllum litum aðskildum.
- Plast skal vera vel hreinsað og snyrtilega frá gengið.
- Ekki má skila plasti í pokum.
- Aðeins er tekið á móti rúlluplasti.
- Ekki er sótt plast sem er í lausu eða í gámum.
Borgarbyggð hvetur bændur til að fylgja þessum reglum svo söfnunin gangi sem greiðast.