Góð aðsókn að sýningu Snjólaugar

desember 4, 2009
Á annað hundrað manns hafa komið í Safnahús á undanförnum dögum til að skoða sýningu Snjólaugar Guðmundsdóttur, en sýningin var opnuð fyrir tæpri viku. Þar sýnir Snjólaug vefnað og flóka. Sýningin ber nafnið ”Af fingrum fram” og hluti hennar er af sýningu sem Snjólaug hélt á Blönduósi árið 2008 til vors 2009 og bar sama nafn. Nokkru hefur þó verið bætt við sýninguna sem haldin er í Safnahúsinu nú.
 
Snjólaugu þarf vart að kynna fyrir íbúum héraðsins þar sem hún hefur um langt skeið unnið hina ýmsu gripi úr íslenskri ull og öðrum náttúruefnum. Hún er menntaður vefnaðarkennari frá Myndlistar- og handíðarskólanum og kenndi meðal annars vefnað í 9 ár í Húsmæðraskólanum á Varmalandi. Listsköpun Snjólaugar hefur að mestu verið byggð á menntun hennar og hún rekur nú listagalleríið Sólu á Brúarlandi á Mýrum.
 
Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir

Share: