Gætum varúðar um jól og áramót

desember 1, 2011
Frá Slökkviliðsstjóra:
Ágætu íbúar Borgarbyggðar
Í ljósi þess að senn gengur í garð sá árstími þegar mikli hætta er á eldsvoðum af völdum kertaljósa og jólaskreytinga vill undirritaður fá að fanga athygli ykkar sem línur þessar lesa á nokkrum grundvallaratriðum.
Heilræði sem halda ber í heiðri:
*Reykskynjarar eru sjálfsögð og ódýr líftrygging, skipta skal um reykskynjara á tíu ára fresti og rafhlöður í þeim til dæmis í desember ár hvert eða oftar ef þörf er á.
*Átt þú handslökkvitæki? Er það í lagi? Hvenær var það síðast yfirfarið?
*Ofhlöðum ekki fjöltengi og gætum að gömlum og lélegum rafbúnaði.
*Notum ávalt viðurkenndar rafvörur og fjöltengi með slökkvara og gaumljósi.
*Eldvarnateppi skal vera í hverju eldhúsi og á aðgengilegum og sýnilegum stað.
*Gerum flóttaáætlun út úr íbúinni vegna eldsvoða með öllum á heimilinu ef til hættuástands kynni að koma og æfum hana reglulega.
*Höfum ekki færri en tvær greiðar flóttaleiðir úr hverri íbúð!
*Gætum varúðar í umgengni við kertaljós og skreytingar, skiljum börn aldrei eftir eftirlitslaus nærri logandi kertum eða eldi.
*Aðgætum íbúðir okkar áður en gengið er til hvílu, eða þær eru yfirgefnar að degi til og hvort nokkurstaðar logi á kerti eða skreytingum.
*Logandi kertaljós séu aldrei höfð í gluggum vegna dragsúgs og lausra gardína!!
*Dreifið sem mest raforkunotkun við matseld um jól og áramót það kemur í veg fyrir hugsanleg óþægindi vegna mikils álags á dreifikerfi rafmagns.
*Ullar eða leðurvettlingar og öryggisgleraugu við meðferð flugelda um áramót!!
*Munum 112 neyðarlína ef slys, veikindi eða eldsvoða ber að höndum!!
Með jólakveðju,
Bjarni K. Þorsteinsson
Slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð
 

Share: