Jarðvegsrannsóknir við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi dagana 15.–16. júní

júní 10, 2026
Featured image for “Jarðvegsrannsóknir við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi dagana 15.–16. júní”

Borgarbyggð tilkynnir að jarðvegsrannsóknir muni fara fram á svæðinu við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi dagana 15.–16. júní, í tengslum við undirbúning fyrirhugaðra framkvæmda við Þorsteinsgötu 1-3.

Rannsóknirnar fela í sér boranir og mælingar á jarðvegi. Á meðan framkvæmdum stendur má búast við tímabundnum truflunum, svo sem hávaða og aukinni umferð vinnuvéla.

Borgarbyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og brýnt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant. 

Nánari upplýsingar veitir:
framkvaemdir@borgarbyggd.is


Share: